Jón Sigurðsson

Myndir og hugleiðingar úr A-Húnavatnssýslu. Hver sem er getur ratað inn á þessa síðu í töluverðri vissu um að komast frá því óskaddaður. Ef einhver skaddast og er tryggður, þá fær hann það bætt. Svo einfalt er það!

Færslur: 2005 Desember

27.12.2005 18:30

Blessuð jólin

Núna er kominn þriðji í jólum. Blessuð börnin, barnabörnin og tengdabörn eru horfin til síns heima eða þangað sem ástin býr. Að sjálfsögðu býr ástin á Árbraut 12 en það býr bara pínulítið meiri ást á þeim stað sem heimili manns er eða þar sem ástin í lífi manns býr. Þeir sem mjög vel þekkja síðuritara vita að hann hefur ritað jólabréf til ættingja og vina undanfarin einhver tuttugu ár hvar fram kemur það helsta sem drifið hefur á daga fjölskyldunar það ár sem við á. Til að nálgast þetta bréf er mjög einfalt að skilja eftir sig fingraför í gestabók þessarar síðu og bréfið verður sent um hæl. Gleðilega rest og ég hlakka til að sjá gömul og ný andlit á nýju ári. 

05.12.2005 21:47

Matur og menning

Helgin er um garð gengin og var viðburðarík svo ekki sé meira sagt. Haldið var upp á afmæli Einars Arnar án þess að hann hefði nokkurn grun um hvað í vændum var. Einnig var haldið upp á afmæli Margrétar Einarsdóttur yngri í Löngumýrinni. Mikael litli fékk sitt nafn sitt skráð í kristið samfélag og sá séra Jón Þorsteinsson um að skíra þetta yndislega barn. Ég er komin heim á Blönduós til þess að gera óþreyttur og hef þurft að elda tvo daga í röð ofan í sjálfan mig einfaldlega vegna þess að Magga er að heiman á námskeiði og kemur ekki heim fyrr en seint á fimmtudag. Ég sé fyrir mér eldamennsku og uppvask næstu þrjá daga en hugga mig við það að tengdamamma kemur heim úr Reykjavík á morgun og hef ég beðið Guð um að biðja hana að bjóða mér í mat a.m.k einu sinni ef ekki tvisvar. Á matseðlinum í kvöld var soðin ýsa með 7 kartöflum, rúgbrauði og ósviknu íslensku smjöri. Megi góður Guð halda verndarhendi yfir öllum mínu fólki og þá sérstaklega tengdamömmu sem eins og áður er getið kemur heim á Blönduós á morgun
  • 1

Um mig

Nafn:

Jón Sigurðsson

Farsími:

8623250

Afmælisdagur:

18.02 1952

Heimilisfang:

Árbraut 12 540 Blönduósi

Heimasími:

4524450

Faðir:

Sigurður M. Þorsteinsson

Móðir:

Ásta Jónsdóttir

Önnur vefsíða:

jonsig@tmumbod.is

Um:

Starfa sem umboðsmaður TM í A-Húnavatnssýslu auk þess að vera fréttaritari Morgunblaðsins á Blönduósi

Uppáhalds bíómynd(ir):

Hotel Ruanda og svo að sjálfsögðu allar James Bond myndirnar

Uppáhalds tónlist:

Maggi Eiríks, Ernirnir og ekki má gleyma sjálfum Bítlunum

Uppáhalds manneskjur:

þær sem halda upp á mig

Uppáhalds matur:

Hrogn og lifur, saltfiskur, þorramatur, ýsa í ýmsum myndum að ógleymdum humarnum. Lambakjötið stendur alltaf fyrir sínu og fátt er betra en útigrillaðar lambakótilettur með kartöflusalati A La Magga

Eftirminnilegast:

Það er svo margt ef að er gáð

Kennitala:

180252-3639

Eldra efni

clockhere

Tenglar

Flettingar í dag: 872
Gestir í dag: 436
Flettingar í gær: 397
Gestir í gær: 70
Samtals flettingar: 62153
Samtals gestir: 11206
Tölur uppfærðar: 20.4.2024 18:14:41