Jón Sigurðsson Myndir og hugleiðingar úr A-Húnavatnssýslu. Hver sem er getur ratað inn á þessa síðu í töluverðri vissu um að komast frá því óskaddaður. Ef einhver skaddast og er tryggður, þá fær hann það bætt. Svo einfalt er það! |
|
Færslur: 2016 Apríl13.04.2016 16:26Púðurtunnur og gæsamerkingarMávarnir í loðnu í Blönduósnum Dagarnir líða, sól hækkar
á himni og farfuglarnir streyma í heimahagana. Allt fram streymir endalaust.
Skýin skyggja lítt á sólina og vindurinn
heldur sig til hlés þessa dagana. Það má segja að veturinn skilji við af
hógværð og vorið laumast inn í líf okkar án vandræða. Þannig hefur þetta verið frá páskum en
reynslan hefur sýnt það að dag skal að kveldi lofa og mey að morgni. Hlíf (Sigurðardóttir) og Lagga (Ragnheiður Þorsteinsdóttir) að leggja upp í göngu frá Fjörulallastíg á Bakkastíginn Vorboðarnir eru margir og
misjafnt hvað það er sem vekur vorið í brjóstum manna. Sumum finnst að vorið sé
komið þegar þrestirnir hefja upp ástarsöngva sína fyrir allar aldir í lok mars.
Vorboðinn ljúfi, lóan hefur lengi átt stóran sess í sálinni og þeir allra
vorþyrstustu fagna sílamávinum sem vorboða í lok febrúar. Krían hefur verið
einkennisfugl vorsins hjá þeim sem einna mesta hafa þolinmæðina en hún fer að
koma í Ósinn allt frá 3. til 15. maí.
Einn er þó hér á staðnum sem hreinlega auglýsir sig sem vorboðan ljúfa
og er það enginn annar en Jónas á Ljóninu. Já það er misjafnt hvar menn hýsa í
huganum sinn vorboða. Þó ríki friður er rétt að hafa varan á Á Vesturbakkanum ríkir
til þess að gera góður friður og hefur gert það í allan vetur en það gæti
breyst þegar sumarsólstöður nálgast. Áður nefndur vorboði Jónas á Ljóninu hefur
í hyggju að reisa þrjú tunnuhús á lendu sinni og leigja þær ferðamönnum sem
athvarf frá og með 15. júní. Ekki ætla ég að fullyrða neitt um áhrifamátt
þessara tunnuhúsa á skipulagsyfirvöld en reynslan hefur kennt mér að blandan
Jónas og yfirvöld hverju nafni sem þau nefnast geta á einni nóttu breyst í efni
sem geta gert saklausa tunnu að púðurtunnu. Þetta er síðasta gæsin sem er er á lífi frá síðustu gæsamerkingum á Blönduósi árið 2000 Ég hef reynt að koma því
til skila að grágæsin AVP sem merkt var sem ungi sumarið 2000 við
sýsluskrifstofuna á Blönduósi sé komin í heimahagana í sextánda sinn. Arnór Þ.
Sigfússon fuglafræðingur stóð fyrir þessum merkingum á sínum tíma ásamt fólki frá fuglaverndarsamtökum á
Bretlandi. Ekkert hefur verið merkingar hér um slóðir sínan þá en Arnór hefur
mikinn áhuga á því að merkja gæsir í sumar og koma fyrir á að minnsta kosti
einni gæs gervihnattarsendi svo fylgjast megi með henni daglega. Þessi merki
kosta 1.700 evrur og það væri gráupplagt fyrir nokkur fyrirtæki og stofnanir að
slá saman fyrir einum sendi og koma sér saman um nafn á gæsina sem sendinn
fengi. Tilvalið verkefni fyrir áhugasama í gæsabænum Blönduósi. Skrifað af Jóni Sig
|
Um mig Nafn: Jón SigurðssonFarsími: 8623250Tölvupóstfang: jonsig@simnet.isAfmælisdagur: 18.02 1952Heimilisfang: Árbraut 12 540 BlönduósiHeimasími: 4524450Faðir: Sigurður M. ÞorsteinssonMóðir: Ásta JónsdóttirÖnnur vefsíða: jonsig@tmumbod.isUm: Starfa sem umboðsmaður TM í A-Húnavatnssýslu auk þess að vera fréttaritari Morgunblaðsins á BlönduósiUppáhalds bíómynd(ir): Hotel Ruanda og svo að sjálfsögðu allar James Bond myndirnarUppáhalds tónlist: Maggi Eiríks, Ernirnir og ekki má gleyma sjálfum BítlunumUppáhalds manneskjur: þær sem halda upp á migUppáhalds matur: Hrogn og lifur, saltfiskur, þorramatur, ýsa í ýmsum myndum að ógleymdum humarnum. Lambakjötið stendur alltaf fyrir sínu og fátt er betra en útigrillaðar lambakótilettur með kartöflusalati A La MaggaEftirminnilegast: Það er svo margt ef að er gáðEldra efni
clockhere Tenglar |
© 2024 123.is | Nýskrá 123.is síðu | Stjórnkerfi 123.is