Jón Sigurðsson

Myndir og hugleiðingar úr A-Húnavatnssýslu. Hver sem er getur ratað inn á þessa síðu í töluverðri vissu um að komast frá því óskaddaður. Ef einhver skaddast og er tryggður, þá fær hann það bætt. Svo einfalt er það!

Færslur: 2007 Ágúst

31.08.2007 14:30

Það helsta sem ég hugsa um hér

    Það er kominn föstudagur um land allt eins og flestir vita. Venjulegast skrifa ég eitthvað þegar Rúnar kemur með Gluggann á miðvikudögum en það er nú bara eins og það er að maður kemur bara ekki öllu verk á einum og sama miðvikudeginum. En það er að verða komin svolítil hefð á það að Rúnar skilji eftir sig vísu þegar hann kemur með Gluggann og þennan miðvikudag brást hann ekki sínum ágæta vana. Ævar Rögnvaldsson var hjá mér í heimsókn þegar Rúnar kom og tókum við þrír spjall saman. Eitthvað var ég að " innspírera" Rúnar með efni í vísu og kastaði fram þessum fyrriparti: Ævar okkur ætíð er/ til ævarandi skammar. Rúnar vildi lítið með þennan frampart gera og fannst á engan hátt Ævar eiga þetta skilið. Þetta var allveg hárrétt athugasemd hjá Rúnari en þar sem ég er nú bara eins og ég er, botnaði ég fyrripartinn sjálfur með þessum orðum: Sýpur bara sénever/ og svo um gólfið þrammar. Rúnar sat smástund hugsi og hugurinn reikaði um bæjarfélagið og endaði að lokum í húsi ekki fjarri heimili Ævars, þ.e. Samkaupum og líkast til hefur hann verið að hugsa um stelpurnar þar. Þetta var innlegg Rúnars þennan ágæta miðvikudag.

Það helsta sem ég hugsa um hér
eru huggulegar skvísur.
Alveg hættur nú ég er
að yrkja góðar vísur.

Ekki er ég nú sammála Rúnari um niðurlag vísunar og eitt er víst að hann verður píndur til að koma með vísu á miðvikudaginn kemur. En áður en að þeim degi kemur á ég eftir að fara nokkrum sinnum í nýja heita pottinn minn og láta líða úr mér.

24.08.2007 09:54

Jón er kominn heim

    Þá er maður kominn heim úr sumarfríinu á Spáni og slapp lifandi frá því þó svo nokkuð hafi ég verið bitinn. Gaman var á Spáni en ósköp er alltaf gott að koma aftur heim í hið hreina og súrefnisríka loft. 
    Ég reyndi aðeins að hefja vinnu að nýju á miðvikudag. Sú vinna fólst í því að rifja upp öll leyniorðin til að komast inn í hin og þessi tölvukerfi. Eftir miklar vangaveltur og áreynslu á heilabúið tókst að grafa þær flestar upp. Reyndar sagði mér það góður maður að ef maður myndi eitthvað af þessu eftir frí væri maður ekki fullhvíldur en hvað með það. Þar sem ég sit í þungum þönkum fyrir framan tölvuna í þessum hugleiðingu , birtist þá ekki vinur minn hann Magnús Rúnar Agnarsson með Gluggann. Nú fyrst fattaði ég að ég væri kominn heim. Við Rúnar tókum spjall saman og spurði ég helstu tíðinda. Magga var eitthvað að snúldrast í kringum okkur með skúringafötu og þrifnaðaráhöld en við létum það ekkert trufla okkur. Í miðju samtali okkar kastar Rúnar fram þessari vísu:



Hjá TM hefur orðið tap
og tölvan er með skælum.
Hér Magga er með myndarskap
meðan við hér pælum.

Já! Jón er svo sannarlega kominn heim.
  • 1

Um mig

Nafn:

Jón Sigurðsson

Farsími:

8623250

Afmælisdagur:

18.02 1952

Heimilisfang:

Árbraut 12 540 Blönduósi

Heimasími:

4524450

Faðir:

Sigurður M. Þorsteinsson

Móðir:

Ásta Jónsdóttir

Önnur vefsíða:

jonsig@tmumbod.is

Um:

Starfa sem umboðsmaður TM í A-Húnavatnssýslu auk þess að vera fréttaritari Morgunblaðsins á Blönduósi

Uppáhalds bíómynd(ir):

Hotel Ruanda og svo að sjálfsögðu allar James Bond myndirnar

Uppáhalds tónlist:

Maggi Eiríks, Ernirnir og ekki má gleyma sjálfum Bítlunum

Uppáhalds manneskjur:

þær sem halda upp á mig

Uppáhalds matur:

Hrogn og lifur, saltfiskur, þorramatur, ýsa í ýmsum myndum að ógleymdum humarnum. Lambakjötið stendur alltaf fyrir sínu og fátt er betra en útigrillaðar lambakótilettur með kartöflusalati A La Magga

Eftirminnilegast:

Það er svo margt ef að er gáð

Kennitala:

180252-3639

Eldra efni

clockhere

Tenglar

Flettingar í dag: 65
Gestir í dag: 25
Flettingar í gær: 632
Gestir í gær: 36
Samtals flettingar: 63900
Samtals gestir: 11335
Tölur uppfærðar: 26.4.2024 20:25:18