Jón Sigurðsson Myndir og hugleiðingar úr A-Húnavatnssýslu. Hver sem er getur ratað inn á þessa síðu í töluverðri vissu um að komast frá því óskaddaður. Ef einhver skaddast og er tryggður, þá fær hann það bætt. Svo einfalt er það! |
|
09.04.2007 21:33Biskupinn og hátæknin "Að áherslan á endalausar framfarir, sívaxandi auð og velsæld, mátt hins hrausta, sterka og stælta, er tál. Á móti kröfum hátækni og háhraða og hámörkun afkasta og ágóða, þarf að koma vægi alúðar og umhyggju fyrir lífinu, landinu, náunganum, ungviðinu veika og brothætta. Meistarinn, sem dó á krossi og reis af gröf, er frelsari heimsins, frelsari þinn." Um þessi orð hnaut ég í annars mjög svo þarfri ræðu biskups á páskadag. Þarna tengir hin mæti maður saman hátækni og háhraða við ágóða og nánast miskunarleysi hins sterka gagnvart hinum veikari. Þarna er farið út á hála braut í umræðu hins daglega lífs því þeir veiku sem eygja vonina í hátækninni finna ekki fyrir stuðningi við sína lífsbaráttu hjá þeim sem helst ættu að veita hann. Hér ég við þá mörgu einstaklinga sem glíma við margs konar sjúkdóma og eygja m.a. von í framförum hátækninnar svo sem stofnfrumurannsóknum. Hinir veiku þrá það heitast að lausn finnist á þeirra baráttumálum þannig að þeir geti orðið sterkir á ný og horft djarfir fram á veg. Það er ekkert samasemmerki á milli þess að vera ríkur og sterkur og veikur og umhyggjusamur. Það sem skiptir öllu máli er að vera maður og bera virðingu fyrir sjálfum sér og öðrum. Ég vil endalausar framfarir. Ég vil velsæld en það þarf ekki að þýða það að ég sé einhver skúrkur sem vaði yfir allt og alla. Lífið er í mínum huga " allt sem að þú villt að aðrir menn gjöri þér ,það sama skalt þú þeim gjöra." Vægi alúðar, og umhyggju fyrir lífinu, landinu, náunganum, ungviðinu veika og brothætta þarf ekki að bera neinn skaða af því að framfarir og velsæld aukist. Þetta voru góðir páskar og það eru mikil forréttindi að sjá vorið koma, lífið vakna í skini og skúrum í landi sem framfarir og velsæld ríkja að minnsta kosti enn. Skrifað af Jón Sig |
Um mig Nafn: Jón SigurðssonFarsími: 8623250Tölvupóstfang: jonsig@simnet.isAfmælisdagur: 18.02 1952Heimilisfang: Árbraut 12 540 BlönduósiHeimasími: 4524450Faðir: Sigurður M. ÞorsteinssonMóðir: Ásta JónsdóttirÖnnur vefsíða: jonsig@tmumbod.isUm: Starfa sem umboðsmaður TM í A-Húnavatnssýslu auk þess að vera fréttaritari Morgunblaðsins á BlönduósiUppáhalds bíómynd(ir): Hotel Ruanda og svo að sjálfsögðu allar James Bond myndirnarUppáhalds tónlist: Maggi Eiríks, Ernirnir og ekki má gleyma sjálfum BítlunumUppáhalds manneskjur: þær sem halda upp á migUppáhalds matur: Hrogn og lifur, saltfiskur, þorramatur, ýsa í ýmsum myndum að ógleymdum humarnum. Lambakjötið stendur alltaf fyrir sínu og fátt er betra en útigrillaðar lambakótilettur með kartöflusalati A La MaggaEftirminnilegast: Það er svo margt ef að er gáðEldra efni
clockhere Tenglar |
© 2024 123.is | Nýskrá 123.is síðu | Stjórnkerfi 123.is