Jón Sigurðsson Myndir og hugleiðingar úr A-Húnavatnssýslu. Hver sem er getur ratað inn á þessa síðu í töluverðri vissu um að komast frá því óskaddaður. Ef einhver skaddast og er tryggður, þá fær hann það bætt. Svo einfalt er það! |
|
03.12.2008 15:11Það sem fer upp þarf ekki endilega að koma niður aftur Fullveldisdagurinn er liðinn og sólin lækkar enn á lofti, en aðventan er gengin í garð og æ fleiri ljós kvikna í gluggum og á húsum íbúanna. Um framtíðina veit maður harla lítið annað en að hún kemur og flestir sæmilega gerðir menn ala í brjósti sér, von um bjarta framtíð, sér og sínum til handa. Þær spár sem maður hefur hvað mest fylgst með í gegnum tíðina eru veðurspár og það get ég sagt með sanni að þegar spáð er góðu veðri sem svo ekki verður, þá mislíkar manni en ef spáð er leiðinda veðri sem svo einhverra hluta kemur ekki, þá er maður nokkuð sáttur. Sem sagt maður er afar vakandi fyrir því sem hentar manni sjálfum. Guð sé oss næstur segir maður þegar "útlitin eru dimm" og aðstæður þannig að þær eru ekki á manns valdi. Hver er sjálfum sér næstur er sagt þegar maður hefur spilað rassinn úr buxunum algjörlega hjálparlaust. Þetta líf er ekki flókið þegar öllu er á botnin hvolft. Einn ágætur maður sagði einhverju sinni að það væri bara ein hlið á hverju máli og það væri sú hlið sem snéri upp. Reyndar er það svo, að síðustu misserin hafa margir sjálfskipaðir vitringar haft þessa kenningu að leiðarljósi og virðast bara hafa náð dágóðum árangri en á því eru reyndar tvær hliðar eins og annar ágætur maður sagði. Að fitja upp á þessu hér er efni í heila heimspeki grein og vangaveltur sem seint fengist botn í þannig að ég skil ykkur eftir með þessa vangaveltu fram að því að kveikt verður á Betlihemskertinu næstkomandi sunnudag og jafnvel lengur ef þess gerist þörf. Það er frekar rólegt á Aðalgötunni þessa dagana. Í Dimmuborgum (hótelinu) er dimmt eins og venjulega og verður seint sagt að það kæti mig, en líkast til breytir það engu um gang himintunglanna hvað mér finnst um hlutina. Reyndar var hér merkis viðburður á Fullveldisdaginn þegar Jónas Skafta opnaði kaffihúsið Ljón norðursins. Það komu til hans þó nokkrir gestir og þáðu veitingar í tilefni dagsins. Ég tók nokkrar myndir af þessu tilefni og þær má sjá í myndaalbúminu. Jónas hyggst ekki opna kaffihúsið aftur fyrr en á annan í jólum og þá gefst fólki tækifæri til að njóta veitinga, tónlistar og síðast en ekki síst að sjá bláu hendurnar sem þar prýða veggi. Rúnar kemur í þessum svifum inn úr jólatrésnæðingnum með Glugga vikunnar, gluggasýn okkar út í komandi viku. Æ, það hljóta allir að skilja þetta með jólatrésnæðinginn en ég vona bara að hann lægi með kvöldinu svo næði ekki um fólk á kirkjuhólnum þegar kveikt verður á jólatrénu frá Moss kl hálf sex. Í Glugganum eru tilmæli, uppskriftir, jólaauglýsingar hverskonar og kynning á ýmsum uppákomum. Ljúft gegnum lífið hefur hann flengst, Rúnar rakst á snillinginn Skarphéðinn sextuga í Samkaupum og þótti Rúnari hann undarlega til fara. Þessi vísa hraut af vörum Rúnars við þessa undarlegu sjón: Ég skrýtin sá og skondinn mann Rúnar hafði af því miklar áhyggjur að fánar Samkaupa skyldi ekki vera dregnir niður þegar verslun var lokað um kl 19 í gærkvöldi. Það er nefnilega þannig að Rúnar dregur fána að húni morgun hvern en öðrum er ætlað að draga fánana niður að kveldi. En það er nefnilega þannig hjá Samkaupum að sumt sem fer upp kemur ekki alltaf niður aftur og því varð Rúnari að orði: Nú fánar blöktu um blakka nótt, * Gísli er verslunarstjóri Samkaupa á Blönduósi
Skrifað af Jóni Sig |
Um mig Nafn: Jón SigurðssonFarsími: 8623250Tölvupóstfang: jonsig@simnet.isAfmælisdagur: 18.02 1952Heimilisfang: Árbraut 12 540 BlönduósiHeimasími: 4524450Faðir: Sigurður M. ÞorsteinssonMóðir: Ásta JónsdóttirÖnnur vefsíða: jonsig@tmumbod.isUm: Starfa sem umboðsmaður TM í A-Húnavatnssýslu auk þess að vera fréttaritari Morgunblaðsins á BlönduósiUppáhalds bíómynd(ir): Hotel Ruanda og svo að sjálfsögðu allar James Bond myndirnarUppáhalds tónlist: Maggi Eiríks, Ernirnir og ekki má gleyma sjálfum BítlunumUppáhalds manneskjur: þær sem halda upp á migUppáhalds matur: Hrogn og lifur, saltfiskur, þorramatur, ýsa í ýmsum myndum að ógleymdum humarnum. Lambakjötið stendur alltaf fyrir sínu og fátt er betra en útigrillaðar lambakótilettur með kartöflusalati A La MaggaEftirminnilegast: Það er svo margt ef að er gáðEldra efni
clockhere Tenglar |
© 2024 123.is | Nýskrá 123.is síðu | Stjórnkerfi 123.is